Ein dýrasta ‘indí’ (stór)mynd fyrr eða síðar. Cloud Atlas er vægast sagt metnaðarfullt stykki úr smiðju Wachowski-systra og Tom Tykwer. Myndin hefur að vísu verið gagnrýnd fyrir ýmislegt og er aldeilis ekki allra – en færa má einnig rök fyrir fegurðina í verkinu og ekki síður einlægninni.
Rafn Herlufsen snýr aftur til okkar Kjartans til að ræða nákvæmlega hvers vegna Cloud Atlas er stórglæsilegt kvikmyndaverk sem flestir ættu að sjá, gefa annan séns og/eða sjá aftur.
Þá er einnig tekið umræðuna um ‘physical media’ og aðgengi mynda á streymum eða drifum. Rafn hefur um alla tíð verið naglharður safnari, með bíómyndaeintök í þúsundatali, og skólar okkur Bíófíklana vel til í lífstíl (og lífs-díl) þessum.
Flest fólk er hvatt til að hlera einlægnina í umræddum umræðum.






Sammála/ósammála?