Hér er hún; stærsta mynd ársins 2025, umdeilanlega stærsta myndin til þessa frá stórmyndakóngnum James Cameron og í senn ábyggilega umdeildasta Avatar-myndin.
Nú er Cameron er nú kominn í logandi hágír með hæðir og lægðir Sulley fjölskyldunnar, vini þeirra, óvini og þær ófáu orrustur sem þar fylgja. Karaktersúpan er orðin meiri en áður og siglir allt í húrrandi sjónarspil þar sem peningurinn sést svo sannarlega á skjánum. Hvort að rassinn hjá áhorfandanum verði orðinn fullaumur eftir þriggja (plús) tíma setu er annað mál. Myndin er að sjálfsögðu rædd í þaula, með og án spilla (sem hefjast á circa 40 mínútna markinu).
Hvort að Fire and Ash marki gígantískan endi á risa þríleik eða sé enn ein upphitunin að einhverju stærra er í brennidepli hjá okkur Kjartani. Auk þess er farið grimmt út í þær umræður um hvort að þetta sé meira af því sama eða djúsí stigmögnun og stækkun á þeim þrívíða bíóheimi sem yfirgnæfir Pandoru.
Eitt er þó allavega víst; Þetta er KLÁRLEGA graðasta Avatar-myndin…





Sammála/ósammála?