Þriðja myndin í Knives Out-seríunni  frá Rian Johnson um eitursnjalla einkaspæjarann Benoit Blanc hefur verið á vörum margra síðustu vikur. Að þessu sinni er kirkja og trú tekin fyrir þar sem Blanc snýr bökum saman við ólukkulegan prest til að komast til botns á stórfurðulegu morðmáli.

Líkt og hefur áður fylgt þessari seríu leiðir Daniel Craig stórskotalið leikara í líflegum bræðingi af glensi og alvöru. Viðsnúningar finnast reglulega handan við hornið í leitinni að svörunum við eftirfarandi spurningum; Hver framdi morðið? Hvernig og hvers vegna?

Við Kjartan og Birgir Snær skoðum framvinduna og metum hvernig allt kemur heim og saman hjá Blanc og félögum að þessu sinni. Spillar verða tilgreindir og má finna skilmörkin í tímakóðum þáttar.

Sammála/ósammála?