Apaplánetan hefur verið ófáu kvikmyndaáhugafólki kunnug síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Þessi umræðuverði kvikmyndabálkur hefur verið títt þekktur fyrir að þræða saman samfélagsádeilu við sci-fi og einstaka sinnum tímaflakk.

Þegar þetta er (hljóð-)ritað eru myndirnar orðnar tíu og endurræsingar tvær að talsins. Við Kjartan og Frikki fastagestur tökum létta yfirferð í gegnum þessar merku myndir en höfum ákveðið að einbeita okkur að mestu að nýjustu núllstillingunni sem hófst árið 2011.

Frikki hafði ekki séð neina af þeim myndum og verður þá stórt spurt um hvernig útkoman reynist, og á hvaða Apaplánetu er best að vera.

Við þemenningarnir virðumst ekki alveg vera samhljóma um hvaða eining þessa fjórleiks ber hvað mest af. En hlustunin er klárlega þess virði að gæða sér á banana yfir og lát duglega heyra.

Sammála/ósammála?