Einhver umtalaðasta mynd síðasta árs, jafnvel af mörgum talin ein sú heitasta ef ekki bitastæðasta.

‘Dom-com’ kvikmyndin Pillion virðist hafa heillað og heltekið gagnrýnendur og áhorfendur víða um heim og því er kjörið að komast til botns á því hvað einkennir þessa fyrstu kvikmynd leikstjórans Harrys Lighton. Hérna sameinast tveir gerólíkir karlmenn í umræðuvert og geysilega eftirminnilegt samband og það tekur ekki langan tíma fyrir áhorfandann til að laðast að öðrum þeirra, eða báðum.

Við Kjartan tókum á móti fastagestunum Írisi Árnadóttur og Steingerði Friðriksdóttur þar sem hver við sinn míkrafón lýsir upplifun sinni á myndinni. Að sjálfsögðu fylgir þessu líka að fara yfir hæðir og lægðir lykilsambandsins í myndinni.

Hlustandi er því hvattur til að smella sér í leðrið og skella sér á fjórar fætur, vegna þess að nú hitnar í stúdíóinu!

Sammála/ósammála?