Jólaandanum fylgir alltaf ýmis stemning með góðri aðstoð frá dægurmenningu. Í hugum sumra bresta hátíðirnar ekki á fyrr en rétta lagið er komið í gang, jafnvel rétti baksturinn og að sjálfsögðu réttu jólamyndirnar.

Það er annars vegar óskrifuð regla að til séu fleiri slæmar kvikmyndir með jólaþema en framúrskarandi. Því er kjörið að renna í gegnum 24 jólakvikmyndir, bæði frægar og faldar, léttar sem truflandi, og hvetjum við lesendur til að smella þeim á dagatalið.

Ein jólaræma á dag kemur hátíðarskapinu í lag með glæsibrag.

1. (des) Batman Returns (1992)

Enn þann dag í dag er með ólíkindum að þessi snældubrjálaða Batman-mynd skuli vera til. Hvað þá að leikfangasmiðjur hafi búið til leikföng í tilefni af útgáfu hennar á sínum tíma. Hér lætur stílistinn Tim Burton allt flakka í abstrakt myndarömmum, skuggamyndum í anda þýska expressjónismans og köldum þemum sem snúa meðal annars að bældum kynhvötum, félagslegum grímum og ofbeldi gegn ungum börnum, að því ógleymdu að S&M-undirtónarnir eru gegnumgangandi. Svona eru jólin, krakkar.

2. In Bruges (2008)

Leigumorðingi í tilvistarkreppu í einni fallegustu borg heims býður ekki upp á það sem kallast hefðbundin jólamynd. Aftur á móti eru þeir Colin Farrell, Ralph Fiennes, Brendan Gleeson, og fleiri, algjörlega upp á sitt besta í sótsvartri kómedíu sem hringir fleiri bjöllum en ætla mætti í fyrstu. Þessa má endalaust vitna í á réttum tíma árs.

3. The Holiday (2006)

Þegar dyr lokast opnast nýir gluggar. Eins og kemur skemmtilega fram í The Holiday geta hinir ófyrirsjáanlegustu hlutir oft leitt til óvæntrar gleði. Kvikmyndinni The Holiday má ár hvert taka á móti með opnum örmum enda er hlýjan og sjarmörinn allsráðandi, meira að segja hjá Jack Black, sem er merkilega sjaldséð.

4. Eden (2019)

Íslenska partímyndin Eden er einfaldlega rokkandi fín, lítil ræma; unnin á hnefanum, en brött, ýkt, frumleg á köflum og rúllar á sterkri frammistöðu frá einni efnilegustu leikkonu landsins. Hún er mynd sem á örugglega eftir að lifa góðu költ-lífi á klakanum um ókomin ár, sérstaklega í ljósi þess að hún er einnig hin undarlegasta jólamynd.

5. Scrooge (1951)

Það er með ólíkindum hversu oft er búið að festa Jólasögu Charles Dickens á filmu. Áhorfandinn, sem er ekki kominn með bráðaógeð af sögunni, er nánast með valkvíða um hvaða útgáfu smella í tækið. Þó er til rétt lausn við því hugarangri og fer ekki á milli mála að útfærslan með Alistair Sim í burðarhlutverkinu ber af. Hún gefur kunnuglegri sögu nokkur viðbætt smáatriði og kemur þroskasaga Skröggsins út áreynslulaust og vekur upp sterk áhrif. Annars má alltaf hafa útgáfuna með Prúðuleikurunum og Michael Caine sem kost til vara.

6. Kiss Kiss Bang Bang (2005)

Frasakóngurinn Shane Black (Lethal Weapon) er hér í essinu sínu með kolruglaðri félagakómedíu um morðgátu í Hollywood á hátíðartímum. Black er þekktur fyrir að búa til naglharðar en hnyttnar og ófyrirsjáanlegar spennumyndir sem gerast á þessum tíma árs. Til að bæta stjörnuna ofan á þetta subbulega en meinfyndna jólatré hefur Robert Downey Jr. sjaldan verið betri, eða beittari.

7. Miracle on 34th Street (1947)

Hér er ekkert á boðstólum nema hjartahlýja og listin að slökkva á allri neikvæðni. Miracle on 34th Street, endurgerðin frá árinu 1994, er ekki alslæm heldur. Túlkun Edmunds Gwenn á meintum jólasveini myndarinnar er ein sú allra besta og sögunni tekst af mikilli snilld að vera dramatísk og upplífgandi án þess að síga fullmikið út í melódrama eða sykur. Þessi er ómissandi.

8. The Hateful Eight (2015)

Rokkstjörnuleikstjórinn Quentin Tarantino tjaldar öllum níhilismanum til og verður seint hægt að kalla áttundu kvikmyndina hans gleðilega. Myndin sýnir þó á flugbeittan máta hvað gerist þegar hópur stórhættulegs fólks getur verið á hálum ís þegar allir eru fastir undir sama þaki á meðan snjóbylur geisar. Jólaandinn sest þó að með stórglæsilegum hætti í ógleymanlegri senu þar sem Heims um ból er spilað á píanó yfir einræðu leikarans Samuels Jackson. Eins og sjá má í þessum lágstemmda en grimma snjóvestra Tarantino heldur maðurinn bæði upp á hvít jól og rauð. Því ber að fagna.

9. The Long Kiss Goodnight

Það er varla hægt að mæla hversu eitursvöl Geena Davis er í þessari mynd. Shane Black er kominn hér í enn einn jólagírinn þar sem eltingarleikir, sprengingar, grafin leyndarmál og töffarastælar eru borðleggjandi. Annað væri nú hin mesta synd.

10. Edward Scissorhands (1990)

Það heldur enginn upp á melankólísk jól eins og Tim Burton, en gegnumgangandi drunginn gerir að verkum að vonarneistinn og hlýju undirtónarnir skera sig þá meira úr. Johnny Depp er endalaust trúverðugur og elskulegur sem sakleysinginn með klippikrumlurnar, sem reynir sitt besta til að gera öðru fólki til geðs og heilla Winonu Ryder. Öðru af tveimur markmiðum er náð, sem telst til mikils jólasigurs.

11. Gremlins (1984)

Eru börnin nógu gömul til að horfa á drungalegar myndir fyrir lengra komna en þó ekki komin á réttan aldur til að leggja í harðkjarna hryllingsmyndir? Þarna kemur Gremlins eins og kölluð; ákaflega skemmtileg, vel gerð og prakkaraleg ævintýramynd sem hefur ábyggilega í gegnum árin gegnt hlutverki sem martraðarfóður margra barna. Einhvers staðar þarf að byrja.

12. Rare Exports

Frændur okkar Finnar kunna aldeilis að mjólka það að nærvera jólasveinsins sé ekki alltaf af hinu góða. Rare Exports tekur flottan snúning á hefðir og fær prik fyrir einn makalaust ljótan Sveinka sem kallar ekki allt ömmu sína.

13. Iron Man 3 (2013)

Ein af vanmetnari Marvel-myndunum og hér – eina ferðina enn – eru taktar Shanes Black að verki. Fjörug, óvænt og fyndin ofurhetjuveisla í gargandi næntís stemningu. Stundum þarf ekki meira til að kæta.

14. Home Alone (1990)

Draumur og martröð sérhvers barns; að lifa hömlulaust og eitt síns liðs með allt heimilið, taka málin í eigin hendur og eigia daginn þegar óprúttnir einstaklingar stefna örygginu í voða. Stefið eftir John Williams er auðvitað löngu orðið goðsagnarkennt og kemur manni í rétta skapið, eins og svo oft áður og síðar hjá þeim manni.

15. Die Hard (1988)

Venjulegur maður festist í óvenjulegum aðstæðum og breytist skyndilega í hversdagshetju. Það skiptir litlu máli þótt Bruce Willis segi sjálfur hið öfuga, en Die Hard er absólút jólamynd.

16. Jingle All the Way (1996)

Það gengur hreinlega ekki að taka á móti jólunum án þess að troða einum stórlega yfirdrifnum Schwarzenegger á listann. Jingle All the Way er hin merkilegasta froða, en kætir með bítandi túlkun á hátindi neysluhyggjunnar í kringum þennan tíma árs. Hasarkóngurinn Arnold lætur ekkert stoppa sig í kaótískri leit að heitasta leikfangi veraldar fyrir son sinn. Sumt er einfaldlega svo slæmt að það verður að fjársjóði.

17. Joyeux Noel

Vönduð og bitastæð frönsk mynd með mikilvægum skilaboðum. Hér sést í tærri mynd hvernig góðmennskan í hjarta fólks getur rutt öllu frá, meira að segja í miðri styrjöld. Joyeux Noel hittir í mark og gott betur.

18. Elf (2003)

Will Ferrell jólar yfir sig á hinn viðkunnanlegasta máta. Elf hefur alla burði til að vera yfirþyrmandi og pínleg fjölskyldumynd en reynist vera prýðilega skrifuð og heillandi saga. Varist þó íslensku talsetninguna eftir bestu getu.

19. Krampus (2015)

Krampus rekur söguna af býsna hversdagslegri fjölskyldu sem þarf að þola að ruddalegir ættingjar þeirra mæta í heimsókn yfir hátíðarnar. Mórallinn er glataður, rifrildi brjótast út og drengur nokkur segir skilið við hátíðarandann og trúna á jólasveininn. Þetta er einmitt tilkall sem kallar á Krampus, sem er ógeðfelld andstæða við hefðbundna jólasveininn, til að sýna fram á það með öllum mögulegum ráðum að til eru verri hlutir við jólin en að deila fríinu með ættingjum sem þú þolir ekki. Jólakötturinn á ekkert í þennan djöful.

20. Go (1999)

Hvernig væri Pulp Fiction ef hún gerðist í kringum jólin og hefði verið gerð sem unglingamynd? Go er að einhverju leyti svarið við þeirri spurningu og er löngu kominn tími til að fleiri leiti upp þennan týnda glaðning sem hefur reglulega farið framhjá fólki síðastliðin tuttugu ár.

21. It’s a Wonderful Life

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. It’s a Wonderful Life er einfaldlega mynd sem er samtvinnuð við jólin. Af hverju? Jú, vegna þess að hún er ein gígantísk sjarmagryfja sem togar stíft í hjartarætur og skilur áhorfandann að lokum eftir með botnlausa gleðitilfinningu. Stórkostleg perla sem ætti helst ekki að fara framhjá neinum. Nokkurn tímann.

22. Eyes Wide Shut (1999)

Fátt segir gleðileg jól eins og svanasöngur meistarans Stanleys Kubrick, þar sem brestir í trausti hjóna, drungalegt kynsvall og dáleiðandi tilvistarkreppa Toms Cruise ræður ríkjum. Höfuðverkur lykilpersónunnar á sér stað í kringum jólin og er aldrei betri tími til að gleðja sjálfið og spúsuna en á einmitt þeim tíma.

23. Love Actually (2003)

Á jólunum er nauðsynlegt að gúffa í sig sykur og sætindi. Love Actually er nálægt því að vera fullkomin jólagjöf sem hefur skellt fjöldanum öllum af litlum rómantískum gamanmyndum í einn pakka. Umbúðirnar þorir maður ekki einu sinni að tæta í sundur, heldur eru þær opnaðar af vandvirkni og áhuga, að ógleymdri slaufu sem gefur manni ekkert nema spikfeitt glott sem er erfitt að þurrka af sér í faðmi fjölskyldunnar eða hvers sem manni er annt um á Jesú-afmælinu (gæludýr og asískir koddar í fullri mannsstærð eru að sjálfsögðu meðtaldir).

24. Brazil (1985)

Skriffinska, einangrun og ábyrgð bregður fyrir í grípandi og kolruglaðri mynd sem þykir með þeim bestu frá skrautfuglinum Terry Gilliam. Frá tónlist til sviðsmynda og handrits er Brazil ekki aðeins toppmynd, heldur að öllum líkindum ein sú óvenjulegasta og súrasta sem tengja má við hátíðirnar. Það sakar ekki að setja koma sér vel fyrir, með fullan maga, á aðfangadagskvöldi og slaka á yfir heimsklassa meistaraverki og Brazil er svo sannarlega frábrugðin öllu öðru sem fyrirfinnst.

Sammála/ósammála?