Við Baldvin Z grandskoðum sjónvarpsseríuna Svörtu sanda í sameiningu. Ég skoða hvern þátt út frá sjónarmiði neytandans og spyr leikstjórann spjörunum úr og spyr leikstjórann spjörunum úr; stúdering beint frá áhorfanda til skaparans.

Veganréttir og makamál eru áberandi í fókus í fimmta hluta Svörtu sanda. Hér að sinni er varpað ljósi á klassíska klisju í morðsögugeiranum sem hér byrjar að laumast inn í Svörtu sanda, þegar tengingar við hundgamalt, dularfullt sakamál fara að birtast úr óvæntum áttum. Þá er aldeilis kannaður púlsinn á ástarmálum okkar fólks. Nú sitja allir helstu karakterar í súpunni, með salt í sári á meðan nokkrir þeirra slást um betri hamborgarann. Velkomin í ‘Stóra sambandsþáttinn’.

Á rammpökkuðum klukkutíma ræðum við Baldvin viðbrögð við þáttunum hingað til, óvænta boðið á Berlinale á meðan sjálfskipaðri sóttkví stóð og þetta helsta sem að baki liggur og mögulega framundan í framvindu seríunnar.

Þá bið ég leikstjórann um sambandsráð á meðan leitast er eftir svörum um hvernig það var að skjóta nektarsenu með °360 snúningi á kameru. Einnig er komið inn á almennt upplýsingaflæði í handritsgerð, hið ósagða á skjánum og ólíku pörin í sviðsljósinu.

Sammála/ósammála?