Allt er sett í hágír og löggufaktorinn er settur í forgang sem aldrei fyrr. Yfirheyrslur, svör og sársauki eru í brennidepli áður en líður að lokalendingunni. Gústi, Fríða og jafnvel Jonna díla við þungar tilfinningar og ljósara er orðið hvert hlutirnir stefna hjá Anítu og Erlu. Þarna er líka miklu ljósi varpað á hvernig þær Auður, Ragnheiður og Hildur raunverulega díla við hlutina.

Erlendur leikstjóri (en hann er vissulega íslenskur) leiðir okkur í gegnum umfang þáttarins og aðferðafræðina sem fylgir andrúmslofti Glerársanda, í senn hvernig hann fékk að leika sér með ýmis konar stílbrögð. Fáum við jafnframt dýpri innsýn í vegferð Erlends í kvikmyndagerð og innbyggðu bíódelluna sem hann deilir með undirrituðum.

Sammála/ósammála?