Kryddpíumyndin mikla sem er annars vegar glitrandi barn síns tíma og hins vegar meta-kómedía sem eldist furðu vel með blatant en fjörugri ádeilu sinni á frægð, dægur- og slúðurmenningu. Spice World þverbrýtur allar mögulegu handritsreglur og fer svolítið eigin leið í sprelli sínu.

Hrafnhildur Eva Guðmundsdóttir, forfallinn Kryddpíuunnandi síðan úr æsku, er sest við hljóðnemann og ræðum við þessa undarlegu en umræðuverðu bíómynd og allt æðið og brjálæðið í kringum þessa poppsveit. Samtímaminningar og innihald textana í lögum grúppunnar koma einnig til tals.

Við hvetjum engann til að taka skot fyrir hvert skipti þar sem dúkkar upp ‘celeb cameo’ í umræddri bíómynd, þó skemmtilegt er að telja þau – og ræða.

Kryddið þarf að flæða.

Sammála/ósammála?