A Real Pain er mynd um sársauka. Hvernig sársauki berst á milli kynslóða, þjáningar í heiminum, hvernig við tökum þátt í eða hunsum hann, og eða tökumst á við hann á réttum tímapunktum, sem röngum. Flóknar tilfinningar ráða ríkjum í þessari mínimalísku kvikmynd Jesses Eisenberg um þá David og Benji, frændur góða á flakki og allan þeirra farangur.
Atli Freyr Bjarnason er sestur með okkur Kjartani til að djúpgreina senur, þemu og karaktera myndarinnar. Málin verða persónuleg.
En ekki hvað?






Sammála/ósammála?