Hver man ekki eftir hinum sívinsæla hryllingsleik sem fjallaði um hóp ungs fólks sem gerir ljótan grikk með óhugnanlegum afleiðingum? Inn blandast svo snjókoma í krummaskuði, alls konar skepnur, dauðagildrur og fléttur. Þetta er auðvitað tölvuleikurinn Until Dawn, sem nú hefur getið af sér kvikmyndaaðlögun
…sem gefur meira eða minna skít í umræddan leik.
Við Atli Freyr skelltum okkur á þessa hryllingsveislu með opnu hugarfari (enda dómarnir ekki alslæmir). Við báðir þekkjum vel til tölvuleiksins og er aldrei að vita nema laumist kannski dýpri tenging við míþólógíuna sem honum fylgdi.
Metum þá hvort við náum að komast nóttina af með umræddu samtali um hvort Sony hafi enn fremur drepið Until Dawn brandið eða ekki.






Sammála/ósammála?