Matrix-sería Wachowski-systranna kom, sá og sigraði heiminn um gott skeið* í kringum aldamótin. Það sem upp úr því spratt varð einkennilega frjó, frumleg, fjölbreytt og heldur betur umdeild kvikmyndasería sem hefur núna spannað nokkrar framhaldsmyndir, tölvuleiki, myndasögur og stuttmyndir.

Margt hefur áður verið rætt í þaula um þennan bálk en Bíófíklar reyna hér að diskútera sarpinn allan og tilheyrandi speki, þemu og (auðvitað!) allt djöfulsins kúlið! 

Við Íris og Kjartan skoðum Matrix-myndirnar fjórar til flokkunar ásamt gæðaröðun á The Animatrix-stuttmyndunum (ó, já, allan pakkann!). Þess að auki fylgja miklar vangaveltur um kynjamyndir, einstakling, samfélög, ástina, jaðarhópa, val, kjarnakonur og fleira rammpakkað. Þar að auki má spyrja sig hversu hinsegin Matrix-myndirnar eru, hvort Neo sé raunverulega nýstárleg túlkun á Þyrnirós og hvað útsendarinn Smith stendur fyrir.

Þýðir þá ekki annað en að staupa í sig rauðu pilluna, smella sér í leðrið, opna eyrun og greina með okkur myndmálið og allan kóðann. Reynt er eftir fremsta magni að gúffa allt í sig af bestu lyst, sem er þó hægara sagt en gert þegar það er engin skeið. En allt fyrir ástina!

Prógrammið skiptist í…

The Matrix

The Animatrix

The Matrix Reloaded

The Matrix Revolutions

The Matrix Resurrections

Hlusta hér:

Sammála/ósammála?