Glen Powell bregður sér í ’Tom Cruise gírinn’ í nýjustu myndinni eftir breska nördagullið Edgar Wright. Þá fetar Powell líka lauslega í fótspor Arnolds Schwarzenegger í þessari uppfærsluaðlögun á samnefndri skáldsögu eftir Stephen King… sem gerist einmitt árið 2025.
Stórskotalið leikara skýtur hérna upp kollinum um allar trissur til að umkringja Powell með alls konar gúmmelaði og orku. Mætti jafnvel segja að Wright sé sjálfur kominn í allt annan gír en venjulega. En hefur hann enn Wright-stöffið?
Hingað til hefur það sennilega ekki leynt sér að Bíófíklar eru ágætir aðdáendur leikstjórans, en við Kjartan og Atli Freyr skelltum okkur á The Running Man og (en ekki hvað?…) hlupum beint í stúdíó Podcast stöðvarinnar til að hljóðrita upplifun okkar.
Þetta er afraksturinn.






Sammála/ósammála?