Aðdáendur söngleiksins Wicked biðu óþreyjufullir eftir því í tuttugu ár að bíómyndaútgáfa sögunnar komi út. Fyrri myndin var frumsýnd við gríðarlegar vinsældir í nóvember 2024 og sópaði meira að segja til sín hlass af Óskarsverðlaunum. Seinni hlutinn var tekinn upp á sama tíma og virðast viðbrögð vera misjöfn um hvor helmingurinn beri meira af, þó adáendur virðast heilt yfir vera massasáttir.

Við Kjartan tókum á móti Wicked-aðdáendunum Hönnu Töru og Eyrúnu Sif (ásamt leynigesti) til að skoða ævintýraheiminn Oz í margs konar formum; hvernig bíóaðlögunin á Wicked – í allri sinni fimm klukkustunda dýrð – breytir, bætir og kætir, auk þess að meta hápunktana, lægðirnar og helstu slagarana.

Upp með kústinn, galdrahattinn og töfrasprotann og njótið heil, en ekki gleyma að pússa glerskóna.

Sammála/ósammála?