Bíóárið 2025

Jæja, hið mikla uppgjör á liðnu kvikmyndaári blasir nú við og þá í tvímælalaust stærsta þætti Bíófíkla til þessa (eins og lengdin kann að gefa til kynna…).

Gestirnir að sinni eru ekki af óskemmtilegri endanum en það eru þau Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir úr bíóhlaðvarpinu Video rekkinn. Bækur eru allverulega bornar saman – tímunum saman – um hvað stóð upp úr á þessu viðburðaríka og umræðuverða kvikmyndaári.

Hér mætast við mækana ansi hreint ólíkir persónuleikar og smekkir, en það er vissulega bara ávísun á hressilegri hlustun. Lofað er líflegri dýnamík… og nokkrum svindlum.

Dembum okkur í þetta.

Sammála/ósammála?