Viti menn, þá er komið að hundraðasta þætti Bíófíkla þar sem tilefnið er að halda upp á einn stórlega vanmetinn og fjölhæfan listamann. 

Ef þú vilt orku, dúndurgóða tónlist, skemmtilega leikara í essinu sínu og stílíseraða fjölbreytni, þá ætti breski dugnaðarforkurinn Danny Boyle að geta glatt þig á margs konar vegu – allavega oftar en ekki. Margt kvikmyndaáhugafólk þekkir til mannsins en stærri sarpinn í allri sinni dýrð ber að ræða.

Við Kjartan erum eldhressir að sinni (og Óli Bjarki Austfjörð enn fremur en hann settist einnig þarna niður með okkur dúóinu) með það að markmiði að fræða hlustandann betur um alla þann Boyle’isma sem ber að ræða yfir vænan og tilraunakenndan feril.

Opnum nú þennan maníska konfektkassa og skoðum hvar styrkleikarnir liggja.

Athugið að þátturinn hefur verið klipptur aðeins til – af ástæðum sem kunna að skýrast þegar líður á hlustunina… en það er líka bara vel í anda Boyle mynda!

Sammála/ósammála?