Skellum í okkur sveppina og kýlum á þetta.

Mario-bræður og vinir möluðu gjörsamlega gull í aðsókn á heimsvísu þegar fyrsta bíómyndin mætti með látum árið 2023. Þá kom að sjálfsögðu ekki annað til greina en að halda samstarfinu áfram hjá Nintendo og Illumination.

Hvar endar þetta eiginlega?

Skipta gæðin einu sinni máli þegar um ræðir svona þekkt vörumerki og skilyrðislausar vinsældir? Er kannski bara nóg að krakkarnir gangi alsælir og sáttir út úr bíóinu? (og ekki er það beinlínis neikvætt að börn flykkist í kvikmyndahús til að byrja með…). Laumast kannski meira undir yfirborði Super Mario myndanna en eingöngu sykurvíma, tilvísanir og ‘páskaegg’?

Svör þessi reyna á mat sérfræðings og að þessu sinni fengum við Arnór Stein Ívarsson úr Tölvuleikjaspjallinu til að greiða úr gúmmelaðinu með okkur. Tengsl hvers og eins við tölvuleikina eru einnig krufin, almenn nostalgía og hlutleysi gagnvart peningamaskínunni.

Skellum í okkur sveppina og kýlum á þetta.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíkill

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading