Í þessum þætti förum við Kjartan ítarlega í frásögn og umræðuverðu kafla myndarinnar, ‘biopic’-formúlur, BAFTA-atvikið fræga, mýtur og vangaveltur um Tourette.

Einstaka sinnum koma út bíómyndir sem óhætt er að mæla með fyrir alla. Þá bókstaflega alla; óháð aldurshópi, stétt, pólitískum gildum, lífsreynslu og fleira þess háttar. Svona myndir sem hitta einfaldlega bara vel í mannsálina, auka skilning á átökum náungans og skilja ýmist eftir sig.

I Swear er ein slíkra mynda. Eða svo segir allavega annar þáttastjórnenda Bíófíkla.

Myndin er byggð á sannri sögu og fjallar um hinn ljúfhjartaða John Davidson, sem hefur frá unglingsaldri glímt við Tourette heilkenni. Útkoman er ljúfsár og einstaklega yljandi þar sem varpað er sterku ljósi á umræðuefni sem ber að fræða margan manninn um (ekki síður í ljósi umtalaða atviksins á BAFTA verðlaununum…).

Þá má jafnframt fullyrða að atburðarás þessarar kvikmyndar kann að vera lyginni líkust, enda er veruleikinn gjarnan furðulegri en skáldskapur.

Í þessum þætti förum við Kjartan ítarlega í frásögn og umræðuverðu kafla myndarinnar, ‘biopic’-formúlur, BAFTA-atvikið fræga, mýtur og vangaveltur um Tourette. Gætu hugsanlega líka dúkkað upp leynigestir í miðjum tökum.

Flokkar:

Leave a Reply

Discover more from Bíófíkill

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading