Greg Sestero er svo sannarlega mikill Íslandsvinur. Það fer ekki á milli mála.

Oft hefur heitið ‘Íslandsvinur’ verið innistæðulaust þegar kemur að frægu fólki. Að því sögðu er leikarinn, bókahöfundurinn og framleiðandinn Greg Sestero án efa sannur Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hann hefur komið til landsins í ófáu skiptiin, hvort sem það hefur verið til að kynna nýjar bíómyndir eða vera viðstaddur á partísýningum hinnar ómetanlegu og sögulegu ruslmyndar sem skaut honum upp til frægðar, The Room.

Íris Árnadóttir, góðvinur og fastagestur hlaðvarpsins, hitti Greg nú á dögunum í Bíó Paradís og átti hressilegt spjall við kauða á vegum Bíófíkla. Í þessu stutta en sérstaka innslagi er farið yfir ýmist í tengslum við feril leikarans, almennan kvikmyndasmekk og verkefni í gegnum árin og á næstunni.

Þá er gráupplagt að sperra upp augu, eyru og hlera (eða horfa á) samtal Írisar við hinn geðþekka Greg.. Hvort tveggja er í boði hér að neðan.

Leave a Reply

Discover more from Bíófíkill

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading