Mortal Kombat vörumerkið hefur haldist býsna stöðugt og notið ágætra vinsælda síðustu 30+ árin. Fyrir utan heimsfræga tölvuleikinn og öll þau mismunandi form sem hann hefur fengist í, má nefna teiknimyndir, sjónvarpsþætti, vefþætti, myndasögur og – að sjálfsögðu – bíómyndir sem sveiflast hafa heiftarlega til í gæðum.
Við Atli Freyr og Kjartan skelltum okkur á ‘fjórðu’ Mortal Kombat-myndina, sem er þó í raun númer tvö í glænýrri endurræsingu. Um er að ræða beint framhald myndarinnar frá 2021 sem lenti með litlum hvelli í miðjum heimsfaraldri en varpaði engu að síður fram stórum loforðum um áframhaldið.
Nú fer Karl Urban á kostum ásamt fleiri slagsmálaóðum góðkunningjum í þeysireið þar sem ýmsu subbulegu er tjaldað til. Kjartan kemst þó ekki hjá því að spyrja hvaða kröfur er sanngjarnt að áhorfendur geri til svona myndar.
Er Mortal Kombat II kannski bara lítið annað en skítþunn hasarsteypa sem eingöngu er ætluð aðdáendum tölvuleikjanna eða leynist meira á bakvið þessa ljómandi flippuðu bardagaveislu? Og hvað þýðir eiginlega „Toastie!”?
Skoðanir verða mismunandi allan hringinn og þá er ekkert annað hægt en að kanna hver okkar þremenningana hefur vinninginn.



Leave a Reply