Það hlaut að koma að því. Eitt vinsælasta tvíeyki síðustu ára úr Stjörnustríðsheiminum fékk að skjótast upp á hvíta tjaldið. The Mandalorian and Grogu er fyrsta Star Wars bíómyndin í sjö ár og má lengi spyrja sig hvort um ræði fagnaðarerindi fyrir aðdáendur eða merki um ákveðin vonbrigði. Þá er einnig kjörið að kanna hvort hægt sé að njóta þessarar myndar án þess að hafa horft á sjónvarpsþættina, eða aðrar Star Wars myndir ef út í það er farið.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er sestur í stúdóið þar sem mikilvægu nördamálin eru í brennidepli. Af stærra umræðumenginu að dæma er að minnsta kosti ljóst að skoðanir gætu skipst í ólíkar áttir.
Ætli Einar sé á þeirri skoðun að Jon Favreau (ásamt Dave Filoni) hafi dúndrað út algjörri neglu fyrir MandoGrogu unnendur? Hvaða kröfur gerði Kjartan til myndarinnar ? Er þetta leiðin, eða bara orðið leiðinlegt?
Betra er að halda hjálminum áföstum, því leiðin að uppgjörinu gæti orðið snúin – þó fjörið vanti ekki.



Leave a Reply