Fljúgandi furðuhlutir, ýktur hasar og einlæg væmni. Jebb. Þetta er Spielberg-mynd.

Steven Spielberg og geimverur. Er það ekki býsna sígild og (oftast) skotheld blanda? Er einn þekktasti leikstjóri okkar kynslóða kannski farinn að reiða eingöngu á gömul trix eða er nóg eftir í tankinum?

Til að viðra þessi svör og almennt skoðanir á mysteríunni Disclosure Day höfum við Kjartan snúið aftur bökum saman við þau Ragnar og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn.

Að þessu sinni erum við bíófíklar ekki staddir í Podcaststöðinni við þessar upptökur, heldur í sérstöku ‘gettó stúdíói’ Video rekkans. Um er að ræða svokallaðan collab-þátt þar sem nóg af gúrme umræðum eru á boðstólnum ásamt einkennilega fríkuðum haug af skemmtilegum útúrdúrum.

Og að sjálfsögðu afhjúpunum – á persónulegri nótunum.

Veisla þessi hefst með einum litlum Play-takka!

Sammála/ósammála?