Punkturinn er íslenskur sketsaþáttur sem tekur skot á auglýsingar, staðalímyndir, orðagrín, kynjamyndir og alls konar hversdagslega samfélagsrýni. Þættirnir eru aðgengilegir á bæði Vísi og á YouTube.

Þátturinn hefur farið í gegnum þónokkrar andlitslyftingar en yfirleitt haldið sama formi og helstu meðlimum. Hann hófst vorið 2007 sem reglulegur afþreyingarþáttur á vegum nemendafélags Menntaskólans í Kópavogi í umsjón undirritaðar. Árið 2008 bættist við Sindri Gretarsson sem aðstoðar(… og síðar meir aðal-)leikstjóri og klippari. Eftirspurnin hélt síðan áfram og þátturinn öðlaðist glænýtt líf frá sumri 2010 þegar hann hóf göngu sína á vefnum Kvikmyndir.is þar sem hann vakti mikið umtal. Árið 2013 voru nýir framleiðendur komnir um borð og var þá frumsýnd ný sería á Monitor TV. Árið 2015 tók Stöð 3 við. 

Á skjánum eru aðalmeðlimir þáttarins Guðmundur Heiðar Helgason, Daníel Kristjánsson, Bjarki Már Jóhannson og Þórunn Guðlaugsdóttir. Með önnur hlutverk fara Bergþóra Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Einarsson, Tanja Björk, Steinar Ársælsson, Benedikt Kristjánsson, Alexander Erlendsson, Sindri Gretars & Tommi Rizzo.

2015 sería…

Þáttur 1

Þáttur 2

Þáttur 3

Þáttur 4

Þáttur 5

Þáttur 6

.

SJÁ ELDRA EFNI