Sennilega súrasti hlaðvarpsþáttur Bíófíkla, fyrr eða síðar.

Hér kemur smá sprell með skondna sögu að baki. Kvöld eitt, fyrir fimm árum síðan (veturinn 2021 nánar til tekið…), settumst við Óli Bjarki Austfjörð niður við míkrafóna til að ræða stóru málin í tengslum við tvær af þekktari leiksýningum íslenskrar menningar. Bæði leikritin voru gefin út á VHS/DVD og hafa lifað ágætu ‘költ’ lífi síðan, einna helst hjá hópum sem eiga sér nostalgíurætur að tengja við þetta skrípóflipp úr smiðju Magnúsar Scheving.

Við Óli, eins og má kannski heyra, vorum vel galsaðir þegar upptökur stóðu en höldum engu að síður efnistökunum hnitmiðuðum og krufningunni innan velsæmis- og skynsemismarka. Upp rísa spurningar á borð við þessar: Hvar er allt fullorðna fólkið í Latabæ? Hvers vegna er bæjarstjórinn svona niðurlútur? Af hverju eru krakkarnir með bílpróf? Hversu úthugsað er lykiláætlunin hjá Glanna glæp og af hverju í ósköpunum beitir Íþróttaálfurinn handrukkara-töktum á hrekkjusvíninu Höllu?

Þáttur þessi hefur lengi safnað ryki í geymslu og þótti okkur bíófíklunum að nú væri sá tími kominn til að gefa þetta út.

Hví ekki?

Leave a Reply

Discover more from Bíófíkill

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading